Popular posts from this blog
MARKMIÐ
Þá er þetta byrjað. Búin að klára listann minn. Komið útprentað upp á vegg og stimplað inn í sálina. Ekkert hveiti. Eftir mikla umhugsun og pepp ætla ég að sleppa öllu hveiti. Ekkert brauð, pasta eða pizza. Ég hugga mig við þá tilhugsun að ég fer til Ítalíu í byrjun nóvember og þar verður nóg af þessum unaði. Hugsa jákvætt, alltaf. Þar sem ég er 21 árs stelpa á ég eðlilega við ýmsa komplexa að stríða. Það gera það flestir. Ótrúlegt en satt gerir það ekkert gagn að hugsa neikvætt um þessa galla. Nú verða þeir sko elskaðir. Stóri rassinn og litla þunna hárið? Ekkert nema ást á þetta. Hreyfing á hverjum degi. Ég tek venjulega hörku tveggja tíma dansæfingar tvisvar í viku en Meistara-Unnur ætlar sko að stunda líkamsrækt á hverjum degi. Og eins og það væri ekki nóg þá ætla ég tvisvar sinnum í viku að vera mætt í ræktina fyrir vinnu. Esjan tekin allavega tvisvar sinnum. Ekkert nammi, snakk eða kaffi. Segir sig sjálft. Minnka sykur. Sykur er reyndar í öööllu...
Oklahomey
Fór til Oklahoma í þrjá daga til að taka nokkrar skemmtanir sem Solla stirða fyrir American Heart Association. Nokkrir hlutir sem ég lærði: -Allir í Oklahoma eiga byssu -Oklahoma elskar Trump og Trump hatta -Oklahoma er með enga/hræðilega tannlækna -Það er mjög universal hegðun hjá krökkum að reyna að kíkja undir kjólinn hjá Sollu -Target búðirnar í OK City eru jafn stórar og ca tvær Smáralindir og það er geðveikt -Ég vil aldrei hætta að taka Sollu gigg því eins klikkaðir og krakkar eru þá er fátt jafn gefandi eins og að fá að hitta börn sem þurfa á peppi og knús að halda. (Linda Ásgeirs var 39 ára þegar ég tók við af henni svo ætti að eiga allavega 14 ár eftir) Þriðja skemmtunin. Það var einhver helvítis DJ með mér upp á sviði sem var svoo lítið peppaður. Hvar er Siggi Hlö þegar maður þarf á honum að halda Yrði samt ekkert heartbroken ef ég færi aldrei aftur til Oklahoma






LOL
ReplyDeletevel gert!
ReplyDeleteÉg afþakka kaffiboðið. Ég þekki þig ekki og veit ekkert um þig. Þykir leiðinlegt að hafa gert þessi mistök að tjá skoðun mína á umfjöllun dv um þín mál. Ég biðst afsökunar hafi það farið fyrir brjóstið á þér. Ég hef enga skoðun á þér seriously. Ég skal passa mig að hafa ekki skoðun á þér eða þínum hlutum framvegis. Ég bið þig í leiðinni um að eyða athugasemdinni sem ég skrifaði, ég hef eytt minni. Svo vona ég að þessu sé lokið. L8er! Tryggvi Rafn Tómasson
ReplyDeleteÞetta er orðinn svooo þreyttur djókur með þetta: er þetta frétt???? Bara gaman að hafa fjölbreyttar fréttir. Og ekki skemmir að hafa jákvæðar líka svona eins og af þér en ekki bara eitthvað væl.
ReplyDeleteEr þetta bloggfærsla?
ReplyDelete