Posts

Showing posts from September, 2013

Meistaramánuður

Image
Jæja þá er ég formlega búin að skrá mig. Veit ekki alveg hvað ég er búin að koma mér út í. En það var mælt með að maður myndi halda út einhvers konar bloggi svo hér er ég mætt. Hef reyndar ekki bloggað síðan ég var hluti af blogcentral/-1992 elítunni (jú við vorum elíta, fengum alltaf að fara í partý hjá Tancrew strákunum í Kóp City) En allavega. Ég er ekki búin að ákveða markmiðin mín 100% en er að klára listann og birti hann hér fyrir mánaðarmót. Aðal markmiðin mín snúast um að koma skipulagi á svartholinu sem fataskápurinn minn er, passa að æfa eitthvað á hverjum degi, borða 100% hollt, fara oftar út að hlaupa með hundinn minn og vera duglegri að heimsækja vini og ættingja. Ekki að það sé í sjálfu sér erfitt að fara í heimsóknir en það getur verið ofboðslega erfitt að finna tíma í það.  Er að klára listann. Mér hættir til að setja inn hluti eins og ,,sleppa öllu hveiti" en þá mun ég enda froðufellandi með hausinn ofan í pastadisk eftir 3-4 daga. Svo ,,sleppa brauð

Prufa

Image
Æfing Aðeins að prófa að blogga.