Popular posts from this blog
International Phonetic Alphabet
Eitt af því sem við gerum í skólanum er að 'transcribe-a' Veit ekki alveg hvað þetta heitir á íslensku- umritun? Þetta snýst sem sagt um að nota bara eitt tákn fyrir hvert hljóð sem við gerum. Til dæmis ef maður ætlar að skrifa 'laugh' þá yrði það skrifað 'læf' (æ-ið er ekki notað eins og í íslensku- þetta er oft mjög ruglandi). Þetta er notað til að umrita texta þannig að það sé hægt að lesa þá nákvæmlega eins og þeir eiga að vera bornir fram. Maður merkir inn áherslur, kommur og punkta, sérhljóðalengd og setur inn réttu táknin fyrir hvert hljóð. Var loksins að klára þetta verkefni, þurftum að umrita þriggja blaðsíðna smásögu. Þetta getur verið mjög erfitt þar sem það eru mjög margar reglur sem þarf að fylgja og það getur verið erfitt að vita hvað hljóð á að koma samkvæmt 'General American.' En það er gott að kunna táknin til að vita hvernig maður eigi að bera orð fram. Þetta verður sérstaklega hjálplegt á næsta ári ...
Langir dagar eru góðir dagar
Er nýbyrjuð að vinna hjá Stórveldinu sem er ekkert smá skemmtilegt. Mikið líf og fjör og ég er virkilega spennt fyrir framhaldinu. Á föstudaginn er fyrsti þáttur af Popp og kók sýndur á Stöð 2 og er búin að vera mikil vinna í kringum hann. Í dag var ég í tökum í nýja stúdíóinu sem var verið að klára að byggja. Allt að gerast! Átti svo að fara á dansæfingu kl 19:30 og kenna dans kl 20:30 en við vorum svo lengi frameftir að ég þurfti að sleppa æfingu og biðja Stellu um að kenna svo fyrir mig. Kom heim dauðþreytt rétt fyrir 22 og fattaði að ég væri ekkert búin að hreyfa mig í allan dag. Það var virkilega freistandi að leggjast upp í rúm og horfa á hana Kim mína kvarta undan bjúg en í staðinn rifum við Jakob bróðir okkur upp og við tókum 5 km skokk um Vesturbæinn. Virkilega hressandi og gott að hafa traustan bodyguard sér við hlið. Og Jakob líka. Ég var algjör skvís með krullur og varalit Vona að sem flestir séu búnir að skrifa niður krefjandi markmið og eru að v...
Comments
Post a Comment