Kínóa pizza
Við mamma erum ekkert að grínast. Við fjölskyldan elskum að fá okkur góða pizzu af og til. Ég byrja pínu að slefa þegar ég hugsa um Eldsmiðju pizzu með pepperoni og ananas og hvítlauksolíu. EN við látum svona cravings ekkert hafa áhrif á okkur. Nú er sko Meistaramánuður og af því tilefni skellti mamma í snilldar Kínóa pizzu í gærkvöldi sem var unaður. Hún lét kínóa kornin (fræin?) liggja í bleyti nóttina áður og henti þessu svo í blender með salt og pipar. Skellti þessu svo á ofnplötu og bakaði í nokkrar mínútur. Þetta smurðum við með heimagerðu guacamole og settum kjúkling, sætar kartöflur og grænmeti á þetta. Eins og ég sagði, unaður. ,,Pizza deigið" úr kínóa sem er sjúklega næringar-, trefja- og próteinríkt. Mjög vel heppnað. Mæli með að þið prófið! Í kvöld var ég svo á dansæfingu og svo sjálf að kenna dans svo það var vel tekið á því. Á þessari mjög svo blurruðu mynd erum við Hófý og Íris að dansa rútínuna sem ég kenndi í 20+ hópnum við Talk Dirty ...






LOL
ReplyDeletevel gert!
ReplyDeleteÉg afþakka kaffiboðið. Ég þekki þig ekki og veit ekkert um þig. Þykir leiðinlegt að hafa gert þessi mistök að tjá skoðun mína á umfjöllun dv um þín mál. Ég biðst afsökunar hafi það farið fyrir brjóstið á þér. Ég hef enga skoðun á þér seriously. Ég skal passa mig að hafa ekki skoðun á þér eða þínum hlutum framvegis. Ég bið þig í leiðinni um að eyða athugasemdinni sem ég skrifaði, ég hef eytt minni. Svo vona ég að þessu sé lokið. L8er! Tryggvi Rafn Tómasson
ReplyDeleteÞetta er orðinn svooo þreyttur djókur með þetta: er þetta frétt???? Bara gaman að hafa fjölbreyttar fréttir. Og ekki skemmir að hafa jákvæðar líka svona eins og af þér en ekki bara eitthvað væl.
ReplyDeleteEr þetta bloggfærsla?
ReplyDelete