Posts

Showing posts from December, 2014

New Hampshire

Image
Hér í Kanalandi er Thanksgiving heilagasti dagur ársins. Fólk leggur miklu meira upp úr því að vera með fjölskyldu sinni á þessum degi heldur en á jólunum.  Við vorum í fríi á fimmtudaginn og föstudaginn svo flestir vinir mínir fóru úr bænum til að knúsa fjölskylduna og finna þakklætið. Mig langaði þvílíkt að stökkva heim og knúsa Uglu og testa Kaffi Vest en fann engan til að sponsa flugmiðann.  Ástralski bekkjarbróðir minn hann Alexander var að fara til New Hampshire að hitta frændfólk þar í Thanksgiving veislu og bauð mér með (nei hann er ekki kærastinn minn) Rútan átti að taka ca 4 tíma en þar sem öll Bandaríkin voru á þjóðveginum, og fyrsti snjór ársins hrundi niður, vorum við í tæpa 6 tíma SNJÓR! Fyrsta kvöldið var allt rafmagnslaust í bænum því það hefði snjóað smá á einhverja rafmagnslínu. Við Alex erum þessa dagana scene-partners. Erum að æfa senu úr A Streetcar Named Desire sem er eitt uppáhalds leikritið mitt. Mæli með að leiklistaráhugafól