Hitti alvöru New York slökkviliðsmenn í gær. Mhmm-mm. Þvílík upplifun.
 |
Maður er svo vanur að heyra sírenur allan liðlangan daginn svo við vorum ekkert að kippa okkur upp við lætin, fyrr en við föttuðum að það væri slökkvibíll beint fyrir utan. |
 |
Þetta reyndist ekki vera merkilegri en það að einhver pía hefði fests í lyftunni, akkúrat á hæðinni okkar |
 |
Það var samt gaman að hitta þessa kappa, og þeir lofuðu að vernda okkur að eilífu |
Annars er allt gott að frétta. Kennararnir hérna eru ekkert að grínast- hér er engin Versló-miskunn. Það er biluð heimavinna fyrir hvern einasta dag en þetta er örugglega í fyrsta skiptið á ævinni sem ég nýt þess að læra heima. Aldrei áður hef ég getað setið kyrr í nokkra tíma og bara legið yfir bókum og glósað að eigin frumkvæði. En það hlaut að koma að þessu. Loksins!
Krakkarnir í bekknum mínum eru líka einstakir. Við erum á stuttum tíma búin að kynnast ótrúlega vel og opna okkur á mjög mörgum levelum. Þetta eru allt magnaðir einstaklingar sem eiga sumir ótrúlega erfiða sögu
Tók nokkrar myndir í dag í pásu til að sýna ykkur þessar elskur:
 |
Þetta er James. Þegar hann er með gleraugun sín er hann alveg eins og Harry Potter |
 |
Brianna fegurðardís |
 |
Hinn ástralski Alexander og krúttsprengjan Victoria |
 |
Connor, Paul og Alexander |
 |
Einhvers konar kynfæra umræða
|
 |
Aisha, grjóthörð New Jersey diva og Danielle, meðleigjandi og ein nánasta vinkona mín hér |
 |
Dani og Jenni, einnig meðleigjendur og miklir snillingar. Jenni er reyndar frá Skotlandi svo ég skil um það bil 40% af því sem hún segir
Mér líður mjög vel. Hélt ég væri með smá heimþrá í gær en svo sá ég öll snöppin af veðrinu. Vil þá frekar vera hér í 20 gráðunum ;p
Knús heim! |
Comments
Post a Comment