Posts

NYFD

Image
Hitti alvöru New York slökkviliðsmenn í gær. Mhmm-mm. Þvílík upplifun. Maður er svo vanur að heyra sírenur allan liðlangan daginn svo við vorum ekkert að kippa okkur upp við lætin, fyrr en við föttuðum að það væri slökkvibíll beint fyrir utan.  Þetta reyndist ekki vera merkilegri en það að einhver pía hefði fests í lyftunni, akkúrat á hæðinni okkar Það var samt gaman að hitta þessa kappa, og þeir lofuðu að vernda okkur að eilífu Annars er allt gott að frétta. Kennararnir hérna eru ekkert að grínast- hér er engin Versló-miskunn. Það er biluð heimavinna fyrir hvern einasta dag en þetta er örugglega í fyrsta skiptið á ævinni sem ég nýt þess að læra heima. Aldrei áður hef ég getað setið kyrr í nokkra tíma og bara legið yfir bókum og glósað að eigin frumkvæði. En það hlaut að koma að þessu. Loksins! Krakkarnir í bekknum mínum eru líka einstakir. Við erum á stuttum tíma búin að kynnast ótrúlega vel og opna okkur á mjög mörgum levelum. Þetta eru allt magnaðir ...

Skólalífið

Image
Var búin að skrifa 10 bls færslu um fyrstu skólavikuna þegar ég fattaði að það væri ekki nokkur manneskja að fara að lesa hana. Í stuttu máli er bekkurinn minn æðislegur, kennararnir snilld, og ég er aum í öllum líkamanum eftir skrýtnustu æfingar sem ég hef gert á ævinni.  Elskulegasta Hildur Vala, fallegasta flugfreyja Icelandair, kom í stutt stopp á föstudaginn. Við kíktum á barinn með bekknum mínum en allir voru svo dauðir eftir vikuna að við vorum komin heim rétt fyrir miðnætti. #djammarar4life Í þessari viku þurfti ég að lesa fimm leikrit. Uppáhaldið mitt er klárlega Lysistrata, og uppáhalds setningin mín er á bls 17, alveg efst. (þetta var fyrst flutt arið 411 f.Kr. en er ennþá jafn sjúklega fyndið í dag) Ég flyt 10 min fyrirlestur um leikritið á mánudaginn. Kennarinn minn sagði að verkið væri háfeminískt en ég er alls ekki sammála honum svo fyrirlesturinn snýst að mörgu leyti um að sanna að hann hafi rangt fyrir sér. Það mun annað hvort heppnast vel e...

Egg-doctor

Það er almennt gaman að vera Íslendingur í útlöndum. Fólki finnst það geðveikt klárt ef það veit að "Iceland is green and Greenland is ice" og þeir allra hörðustu ná að nefna 2-3 lög með Björk eða Sigur Rós ("I like love how they sound like elves").  Ég tek almennt þátt í þessum umræðum, segi að jú, ég sé að sjálfsögðu víkingur sem á nokkra ísbirni heima og jújú, ég sé auðvitað gift frænda mínum, hohoho.  En það versta við að vera Íslendingur (og þetta á alls ekki við um alla því sumir foreldrar elska börnin sín) er að vera skírður nafni sem enginn, ekki einu sinni skandinavíska fólkið í skólanum, getur borið fram. Unnur. Það er varla hægt að finna erfiðara nafn fyrir Bandaríkjamenn. Önnörh? Únnerrh? Unnushsh? Svo vitiði hvað? Ég heiti ekki Unnur lengur. Neinei. Nú er það Unna. Ú-nna. Yes. Það er það skásta sem fólkið hérna getur kallað mig. Svo spurði einhver hvort Eggertsdóttir þýddi egg-doctor. Takk mamma og pabbi. Kveðja Unna

Virkir í athugasemdum

Image
Mjásur- ég er með massa samviskubit yfir því að hafa eytt tímanum ykkar þegar þið lásuð óvart eitthvað sem þið sáuð svo eftir að hafa lesið. Ef þið komið einhvern tímann til NYC skal ég gefa ykkur kaffi. Knús!

Helgin

Image
 Helgin var algjör snilld- maður er að kynnast krökkunum betur og betur og flestir hérna eru æðislegir. Eina sem fer í taugarnar á mér eru týpurnar sem eru að koma hingað beint úr High School. Það lið er náttúrulega bara 18 ára og er bara að springa úr æsingi og gólandi á göngunum um hvað það er SO EXCITED TO MEET EVERYONE AND START WORKING WITH ALL OF THESE AMAZING PEOPLE Æj þau eru ábyggilega fín. Ég held samt að krakkar á Íslandi þroskist hraðar heldur en þessir bandarísku- allavega finn ég ekki svona gríðarlegan aldursmun á 18 ára krökkunum heima. Við erum vön að vera alltaf í einhverjum vinnum og almennt mjög sjálfstæð, á meðan þessi krútt eru bara að dóla sér á meðan ma og pa splæsa í college.  Sem betur fer eru mjög margir hérna á mínum aldri, og við erum alltaf að gera grín að þessum dúllum. Stelpurnar á hæðinni eru t.d. allar á aldrinum 21-24 ára svo ég er mjög heppin með það. Moranenn, Unnsi, Danielle og Alex. Elska að búa með þessum stelpum Þa...

Sam Smith

Image
Áður en ég fór út komu elsku bestu vinkonur mínar mér á óvart með miða á Sam Smith tónleika hér á Manhattan í Hammerstein Ballroom.  Tófurnar mínar Tónleikarnir voru stórkostlegir. Vá. Þessi maður söng hverja einustu nótu svo fullkomlega og af svo mikilli innlifun að ég er ennþá að jafna mig. Það var líka eitthvað svo stórkostlega magnað við að vera á tónleikum og heyra "New York Cityyyyyy!!!" Hljómsveitin Broods frá Nýja Sjálandi hitaði upp. Mæli með að þið tékkið á henni, þau eru mjög svöl Stelpurnar hugsuðu vel um sína og settu mig á fremsta bekk upp á svölunum Var sem sagt ein á tónleikunum. Var fyrst pínu smeyk við það en mér fannst það gera kvöldið ennþá betra. Hausinn fer á svo mikið flakk þegar maður er svona einn- svo var líka bara geðveikt gaman að vera ein að dansa og gráta til skiptis og öööllum var sama hvernig ég var (ég er alltaf að tala um hvað ég græt mikið, mér líður samt alveg vel sko) Beint fyrir aftan mig ...

Zmartland

Smá viðtal við mig á Smartlandinu! Tékk it :) Ég kann að gera hyperlink