3ja ára pása



Hæ!

Byrjaði með þetta blogg þegar ég flutti til New York 2014 til að fara í leiklistarskóla. Familíunni fannst gaman að vita að ég væri enn á lífi og mér fannst gaman að röfla um námið og lífið og monta mig af Broadway sýningunum sem ég fór á.

Eins og flestar dagbækur entist það ekki lengur en sirka hálft ár. 

En nú er annað mjög skemmtilegt ævintýri að fara af stað, og familían ennþá rosalega ánægð þegar hún fær að vita af mér á lífi.

Í lok mánaðarins flyt ég til Las Vegas, þar sem ég er búin að skrifa undir sex mánaða samning við söngleikin ‘Marilyn! The New Musical.’ (Svo dagbókin ætti alveg að endast í þetta hálfa ár áður en ég gefst upp aftur)

Ef þið hafið áhuga á fylgjast með, þá mun ég reglulega setja hér inn myndir og segja frá ferlinu.
Ef þið hafið ekki áhuga, þá mæli ég með að reiðiskommenta hér fyrir neðan. 

Knús á ykkur sem ég þekki og high five á ykkur sem ég þekki ekki,

Unnur xx 



Comments

Popular posts from this blog

My anaconda

Sam Smith

Rottur