Posts

King Larry

Image
Ok afsakið væmnina en að vera leiklistarnemi í New York er eins og að vera í nammibarnum á Hagkaup kl 00:01 á aðfaranótt laugardags.  Í gærkvöldi fórum við Birna Anna, Lára Björg og Peter á Fish in the Dark, sem Larry David skrifaði og leikur í. Þvílíkt brillíans . Ég er akkúrat korter að labba yfir á Times Square frá skólanum mínum. Þar sem ég er núna New York búi hata ég samt túrista og forðast þennan stað eins og ég get (en verð alltaf jafn mindblown þegar ég labba í gegn) Systur og Peter til í þetta KING LARRY Að sjálfsögðu var splæst í flugelda handa legendinu.  Ef fólk á leið í borgina mæli ég 100% með þessari sýningu. Þvílíkt mikið hlegið og Larry kyntröllakrúttið alveg í essinu sínu

Hálfs árs NYC afmæli

Sæll hvað tíminn líður hratt. Saaaææííll. Hálft ár liðið í bestu borg í heimi. Ég er klárlega á því að Ísland sé besta  land  í heimi, en Reykjavík á ekki neitt í New York. Sorrý Gísli Marteinn. Þegar ég var búin að vera hérna í mánuð tók ég saman nokkur atriði sem ég hafði lært á þessum fjórum vikum. (Sjá  hér ) Ég ákvað að gera nýjan lista í tilefni hálfa ársins og svona í tilefni þess að mig langar að endurvekja þessa bloggsíðu. Þótt ekki sé nema bara fyrir mig til að koma niður hugsunum og pælingum. Og myndum af sjálfri mér. Svooo eftir þessa sex mánuði er margt annað búið að koma í ljós: -New York elskar að rugla í þér. Þú vaknar í sól og blíðu og finnur $20 seðil í peysuvasa en svo þarftu að horfa á mann pissa á sig (eða gubba) í lestinni. -Fólk mun rífa kjaft við þig. Sama hvað- þú varst eitthvað fyrir því, þú horfðir of lengi á hundinn þeirra, þú rakst óvart utan í það. EN- Ef þú segir ekkert á móti, þótt það sé ekki nema bara "hey you ne...

New Hampshire

Image
Hér í Kanalandi er Thanksgiving heilagasti dagur ársins. Fólk leggur miklu meira upp úr því að vera með fjölskyldu sinni á þessum degi heldur en á jólunum.  Við vorum í fríi á fimmtudaginn og föstudaginn svo flestir vinir mínir fóru úr bænum til að knúsa fjölskylduna og finna þakklætið. Mig langaði þvílíkt að stökkva heim og knúsa Uglu og testa Kaffi Vest en fann engan til að sponsa flugmiðann.  Ástralski bekkjarbróðir minn hann Alexander var að fara til New Hampshire að hitta frændfólk þar í Thanksgiving veislu og bauð mér með (nei hann er ekki kærastinn minn) Rútan átti að taka ca 4 tíma en þar sem öll Bandaríkin voru á þjóðveginum, og fyrsti snjór ársins hrundi niður, vorum við í tæpa 6 tíma SNJÓR! Fyrsta kvöldið var allt rafmagnslaust í bænum því það hefði snjóað smá á einhverja rafmagnslínu. Við Alex erum þessa dagana scene-partners. Erum að æfa senu úr A Streetcar Named Desire sem er eitt uppáhalds leikritið mitt. Mæli með að leiklista...

BREAKING BAD

Image
SHIT. Ég veit að allir vita að þetta eru geðveikir þættir en bara almáttugur. Hvað er að frétta. Ég reyndi við þessa þætti einhvern tímann í sumar, þegar ég var lasin og horfði á þetta hálfsofandi í tölvunni upp í rúmi. Skildi hæpið í kringum þetta alls ekki.  En svo var fólk að segja að maður þurfi semi að 'pína' sig í gegnum fyrstu þættina áður en þetta verður alveg svona bilað spennandi.  Svo í skólanum er talað um þessa þætti í hverjum einasta tíma! Í Theatre History er kennarinn alltaf að vísa í þættina og útskýra ýmis hugtök með hjálp Walter White.   Svo ég reyndi aftur. Og í þetta sinn er ég bara slefandi yfir þessari snilld. Hvaða rugl er þetta? Öll samtölin, öll myndatakan, allar samvisku-barátturnar... ég er bara gjörsamlega seld.  Þið 15 einstaklingar sem hafið ekki ennþá séð þessa þætti, HORFIÐI! (nema þið séuð undir 16, þá er þetta frekar ljótt og þá ættuði frekar að horfa á Master Chef Jr. sem er nýja guilty pleasure-ið m...

Helgin

Image
Þvílík helgi! Ohh. Aðeins of yndislegt að fá strákana í heimsókn.  Á laugardaginn fórum við á Broadway Comedy Club. Þar voru 3 af 5 uppistöndurum kvenkyns svo ég var gríðarlega sátt. #whoruntheworld Steik & rauðvín. Ég tárast þetta var svo gott. Krakkarnir í Central Park Pabbaknúúús  Sætir upp á Empire State Ok LOL svo vorum við í Washington Square Park þar sem nokkrir gaurar voru með atriði og haldiði að pabbi hafi ekki verið dreginn upp haha. Einmitt það sem hann elskar.  Þetta var aðeins of fyndið. Gaurarnir voru þvílíkt að fíflast í pabba sem var svo látinn beygja sig niður á meðan þeir stukku yfir hann. Yndislegur endir á helginni. 

Ég er á lífi!

Image
HÆ Bilað bloggleysi síðustu þrjár vikurnar. Við erum búin að vera í klikkaðri "midterm" prófatörn. Er búin að fara í próf í flestum áföngunum, bæði bókleg og svo verkleg. Mér gekk mjög vel! Er búin að fá út úr nokkrum og er mjög ánægð með einkunnirnar. Held ég hafi aldrei áður á minni skólagöngu lagt jafn mikinn metnað í próf- enda hef ég aldrei haft jafn bilaðslega mikinn áhuga á því sem ég er að læra oog svo spilar auðvitað inn í hvað skólakerfið okkar er meingallað og virkilega ömurlega hannað en það er efni í aðra og lengri bloggfærslu.  Allavega. Hér eru nokkrar myndir frá síðustu dögum/vikum: NYC Marathon! Bilað stuð. Ótrúlegt hvað þetta lið er öflugt.  Birna Anna og Kata spenntar fyrir hlaupinu! Þetta er klárlega komið á bucket listann! Það er fólk meðfram öllu hlaupinu með skilti og öskrar og gólar í hvert skipti sem einhver hleypur framhjá. Þetta er rugl mikil stemning Luna er geggjað nafn sem fólkið á Starbucks á...

So no one told life was gonna be this wayyyy

Image
*Klappklappklappklapp* Langþráður draumur rættist í dag. Fór í Central Perk!! Hægt að sjá frétt um kaffihúsið  *hér* Fötin sem Rachel var í í lokaþættinum! Ég snerti þau!! Gítarinn hennar Phoebe Lengst til vinstri er skyrtan sem Monica var í sem var svo óvart gegnsæ, muniði?? Alvöru sófinn sem var notaður í þáttunum- aldrei verið jafn hamingjusöm