Connor bekkjarbróðir minn gerðist svo elskulegur að bjóða nokkrum krökkum heim til fjölskyldunnar sinnar sem býr í Little Silver, New Jersey. Í dag er nefnilega frí í skólanum því Bandaríkjamenn standa enn í þeirri trú að Columbus var fyrstur til að finna USA. Tókum lestina þangað í gær sem tók ekki nema rúmlega klukkutíma og pabbi hans Connors, sem heitir Will Smith (lol) kom og sótti okkur. Ég í lestinni að hugsa um akkúrat ekki neitt Connor rúntaði svo með okkur um bæinn, gaf okkur ekta Jersey hamborgara og keyrðum svo að húsinu sem Bon Jovi á. Mér fannst það geðveikt. Mr. Jovi residence Næst lá leiðin að ströndinni! Ég elska elska elska sjóinn, og er búin að sakna hans ótrúlega mikið. Það var yndislegt að heyra í öldunum, finna saltlyktina og grafa tánnum ofan í sandinn. Þetta var í alvöru besta endurnæring sem gat fengið. Ooo svo gaman Fullkomnun Danielle, Peter og Connor Væmnar. Hér heiti ég ...