Knicks vs Heat
Birna Anna frænka og New York verndarengillinn minn fékk trylltustu miða ever á New York Knicks vs. Miami Heat í Madison Square Garden í gærkvöldi.
Courtside. Rugl.
Birna og Peter
Aðeins að teygja
Peter, Birna, Unns og Anna vinkona Birnu
Klappstýrurnar á sínum stað
'
Svo byrjaði celeb-skjárinn. Kelly Rutherford, sem lék mömmuna í Gossip Girl, var á svæðinu
Þarna er skvís í gráa loðvestinu
Fegurð
ER SVO EKKI BARA 50 CENT Í HÚSINU! Þótt Fiddy sé ekki búin að vera on top of his game undanfarið, þá var þessi maður mér allt á erfiðustu unglingsárunum mínum. Allt. Ég get ennþá rappað hvert einasta lag með honum og græt við tilhugsunina um að hann þurfi einn daginn að kveðja þennan heim.
Þarna er hann í allri sinni dýrð. One Love.
Það var nú vitað fyrirfram að Heats myndi pakka Knicks saman. Okkar menn náðu að halda þessu ágætlegu jöfnu fyrsta hálftímann en svo fór þetta allt niður á við. Endaði í 111-87.
Mæta svo ekki bara Vidal og Principal Lopez og taka á móti verðlaunum!! Þarna trylltumst við endanlega. Ef þið eruð ekki búin að fylgjast með þessu á Humans of New York, sjáið -> hér
Vidal for president
Ótrúlegt útsýni
Albert og Nikolai úr einni bestu hljómsveit heims <3
Ooog Skylar úr bestu mynd heims!
Sjá þessi dýr. Magnað.
Án efa ein besta NY upplifunin hingað til þótt maður hefði alveg verið til í að sjá Knicks ekki skíta gjörsamlega á sig.
Ég er ennþá í léttu sjokki yfir þessu öllu. Takk fyrir mig Birnaa!
Það sem ég öfunda þig !
ReplyDelete