Adele Dazeem
Drottning Idina Menzel er síðustu tvö ár búin að leika í söngleiknum If/Then. Ég fattaði í síðustu viku að það voru aðeins 4 sýningar eftir, og að ég myndi aldrei fyrirgefa sjálfri mér ef ég myndi ekki grípa tækifærið. Við Julia slepptum því að borða í viku og keyptum okkur ódýrustu miðana. Alveg aftast. En hvað gerir maður ekki fyrir Queen Elsu Sýningin sjálf var því miður ekkert spes. En ég var samt með gæsahúð allan tímann því Idina er svo mikil gyðja. ÞARNA ER HÚN Klapp klapp fyrir hljómsveit Tvö á vinstri kantinum með allt niðrum sig Við biðum aðeins fyrir utan við 'stage door' til að ná mynd af frú Dazeem. Hún lét þó þokkalega bíða eftir sér og við áttum eftir að læra fullt svo við fórum bara heim. En eins og þið sjáið var massa troðningur fyrir utan og bíll á standby til að spóla burt Svo löbbuðum við framhjá Lunt-Fontanne leikhúsinu þar sem var nýbúið að frumsýna Finding Neverland. Er ekki bara minn maðu...