BREAKING BAD
![Image](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEhUZIrWKA-KDUThgtnb0WgkluTQ924RqqgyF94DHnElZqwc-dmp3ZJHxepKjkPVzHQJgBAzxWTWOxJYmP4_QWVg7l_5yeetSU7KKv3GKyQFAKkThruj-hgb2SvLEcO9qFvCkwFQArBETCQ/s400/140624-breaking-bad-1637_c7925db7a0b86a9eac7fcab9bccd3158.jpg)
SHIT. Ég veit að allir vita að þetta eru geðveikir þættir en bara almáttugur. Hvað er að frétta. Ég reyndi við þessa þætti einhvern tímann í sumar, þegar ég var lasin og horfði á þetta hálfsofandi í tölvunni upp í rúmi. Skildi hæpið í kringum þetta alls ekki. En svo var fólk að segja að maður þurfi semi að 'pína' sig í gegnum fyrstu þættina áður en þetta verður alveg svona bilað spennandi. Svo í skólanum er talað um þessa þætti í hverjum einasta tíma! Í Theatre History er kennarinn alltaf að vísa í þættina og útskýra ýmis hugtök með hjálp Walter White. Svo ég reyndi aftur. Og í þetta sinn er ég bara slefandi yfir þessari snilld. Hvaða rugl er þetta? Öll samtölin, öll myndatakan, allar samvisku-barátturnar... ég er bara gjörsamlega seld. Þið 15 einstaklingar sem hafið ekki ennþá séð þessa þætti, HORFIÐI! (nema þið séuð undir 16, þá er þetta frekar ljótt og þá ættuði frekar að horfa á Master Chef Jr. sem er nýja guilty pleasure-ið m...